Laugardaginn 10. ágúst kl. 15:00 opnar Þórdís Alda Sigurðardóttir sýninguna Stolnar Fjaðrir í Ketilhúsinu á Akureyri.
Þórdís sækir efnivið sinn og hugmyndir í "dótakassa samtímans með öllum þeim efnum, hlutum, tækjum, tólum og klæðum sem er hið raunverulega, daglega sjónarspil stórs hluta mannkyns."
Skúlptúrinnsetningin hentar einkar vel fyrir nálgun hennar og skilning. Í innsetningunni verður til umhverfi sem við getum gengið inn í eða að minnsta kosti mátað okkur við, umhverfi sem er eins og efnið sem hún notar, í senn hversdagslegt og framandi. Hér fá kunnuglegir hlutir nýtt samhengi og úr verður samtal sem við erum strax orðin hluti af einmitt vegna þess að hversdagsleikinn er okkur að svo stórum hluta sameigin legur: Öll eigum við sokka í skúffu eða á snúru. Það sem kemur á óvart er að úr þessum hlutum megi smíða heila furðuveröld, jafnvel einhvers konar ævintýraskóg og opinbera þannig miklu stærri sögu um veröld okkar og örlög.
Sýningin opnar eins og áður segir laugardaginn 10. ágúst kl. 15:00 og stendur til 15. september
Opið alla daga nema mánudaga kl. 9-17.
Frá 1. september er opið alla daga nema mánudaga og þriðjudaga kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis. Nánar á: www.sjonlist.is